Konur fjárfestum - Borgarnes

Hittumst á Hótel Vesturlandi, Borgarbraut 59, Borgarnesi og tökum létt spjall um fjárfestingar og hvernig þú stofnar fyrirtæki.

Snædís Ögn Flosadóttir segir okkur frá „Konur fjárfestum“ verkefninu sem Arion banki setti á laggirnar í upphafi árs 2024 til að efla þátttöku kvenna á fjármálamarkaði. Hún leiðir okkur síðan yfir grunnatriði í fjárfestingum, lykilhugtök og hvernig byrja á að fjárfesta í sjóðum, hlutabréfum og skuldabréfum.

Því næst fer Helga Sigurrós Valgeirsdóttir yfir praktísku málin um hvernig þú stofnar fyrirtæki.

Fyrirlesturinn er um klukkustund, spjall, spurningar og léttar veitingar í kjölfarið.

Skráning

Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.

Hvar: Hótel Vesturland, Borgarbraut 59, Borgarnesi
Hvenær: 21. nóvember kl. 17:30

Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.