Heimsækjum Kauphöllina Nasdaq Iceland
Hefur þig alltaf langað að kíkja í Kauphöllina og sjá hvar viðskipti á markaði eiga sér stað?
Nú er tækifærið, því miðvikudaginn 20. nóvember ætlum við að taka létt spjall um fjárfestingar í Kauphöllinni Nasdaq Iceland, Laugarvegi 182.
Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður á mörkuðum hjá Arion banka, kafar dýpra í fjárfestingar í fyrirlestri sem er framhald af Fjármál og fjárfestingar - grunnur.
Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland, fer síðan yfir hvernig hlutabréfaviðskipti fara fram.
Fyrirlesturinn er frá 17:00 – 18:30, spjall, spurningar og léttar veitingar í kjölfarið.
Skráning
Hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund og halda umræðunni áfram að loknum fyrirlestri.
Hvar: Kauphöllin Nasdaq Iceland
Hvenær: 20. nóvember kl. 17:00-18:30
Skráðar munu fá senda tölvupósta sem tengjast skráningu á viðburðinn.