Innheimta húsaleigu
Þegar sótt er um húsaleiguþjónustu þarf í upphafi að gera samning um innheimtuþjónustu og undirrita samning rafrænt eða koma með undirritað frumrit af samningi í næsta útibú. Fylla þarf út beiðni um innheimtu húsaleigu og senda okkur í tölvupósti á fyrirtaeki@arionbanki.is. Einnig er hægt að senda breytingar húsaleigu á sama eyðublaði með upplýsingum um leigutaka, leiguupphæð og hvort leigan sé bundin vísitölu. Eyðublað um innheimtu húsaleigu er að finna hér fyrir neðan.
Athugið að allar breytingar er varða þjónustuna þarf að tilkynna fyrir 20. hvers mánaðar.
Hægt er að hafa samband við þjónustuver bankans 444-7000 vegna frekari upplýsinga.
Hvað felst í þjónustunni?
- Innheimta húsaleigu með greiðsluseðli gegnum innheimtuþjónustu sem hægt er að setja í beingreiðslur hjá hvaða banka sem er. Hentar fyrir smærri sem stærri leigusala. Innheimta á öðrum kostnaði eða sérgjöldum á sama greiðsluseðli, t.d. fyrir hita eða rafmagni svo að eitthvað sé nefnt
- Greiðsluseðlar og yfirlit
- Leigusali ákveður gjalddaga og eindaga
- Hægt að velja upphæð vanskilagjalda og ákveða hvort það eigi að vera dráttarvextir. Greiddir greiðsluseðlar færast á reikning leigusala hjá bankanum
- Skulda- og greiðslulista og nafnalista er hægt að nálgast í netbankanum hvenær sem er eða í næsta útibúi
- Kostnaður fyrir þessa þjónustu er samkvæmt verðskrá bankans