B2B vefþjónusta
B2B er samskiptatækni fyrir bókhaldskerfi fyrirtækja til að skiptast á upplýsingum til og frá banka. Nánast er eingöngu unnið í bókhaldskerfinu án viðkomu í netbanka. Hentar öllum fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og félagasamtökum stórum sem smáum.
Kostir
- Betri nýting mannauðs
- Vinnuferlar styttast
- Unnið í einu kerfi
- Minni villuhætta
- Tímasparnaður
- Aukin afköst
- Einfaldara bókunarferli
- Hagræði í bókhaldi
Þjónusta í boði
- Innheimtukröfur
- Innlendar og erlendar greiðslur
- Bankareikningar
- Sækja yfirlit yfir innlánsreikninga
- Gengi gjaldmiðla
- Ógreiddir reikningar
- Rafræn skjöl
- Kreditkort
Hvorki stofngjald né árgjald er greitt til bankans vegna B2B þjónustunnar. Hafa ber þó í huga að B2B er samskiptatól sem notað er til að framkvæma ýmsar bankaaðgerðir sem geta verið gjaldskyldar. Arion banki fer fram á notkun rafrænna skilríka þegar þjónustan er notuð, um er að ræða starfs- eða hugbúnaðarskilríki frá Auðkenni, ekki skilríki á farsíma. Til að fá aðgang að þjónustunni þarf að undirrita netbankasamning við bankann.
Fyrirtæki hafa samband við sitt hugbúnaðarhús, sem setur upp tenginguna í bókhaldskerfi viðkomandi fyrirtækis. Hugbúnaðarhúsið tengir saman rafrænt skilríki og notendaaðgang fyrirtækisins í netbanka.