Yfirdráttarlán er algengasta form skammtímafjármögnunar
Yfirdráttarlán hentar vel þegar tímabundin fjárþörf er í rekstri fyrirtækja eða sveiflur eru í fjármagnsþörf. Yfirdráttarheimild er veitt á reikning félagsins og samið eru um yfirdráttarheimild til eins árs í senn eða skemur og eingöngu greiddir vextir af nýttri heimild.
Lykilnotendur stýra ferðinni
Þeir aðilar sem skráðir eru sem lykilnotendur í netbanka stýra ferðinni og geta sótt um, hækkað og lækkað yfirdrátt í netbankanum. Að vera með skráðan lykilnotanda er því einfaldasta og þægilegasta leiðin til að sýsla með heimildir.

.jpg)
Skuldabréfalán
Skuldabréfalán er lánaform þar sem félagið greiðir lánið niður með reglulegum greiðslum oftast mánaðarlegum. Þú semur um upphæð og lengd lánstíma.
Þarf fyrirtækið skuldabréfalán?
Ef þú hefur einhverjar spurningar getur þú haft samband við okkur í netspjalli eða sent okkur tölvupóst á fyrirtaeki@arionbanki.is.
Framkvæmdir framundan?
Framkvæmdafjármögnun/ádráttarlán er lán til fyrirtækja á meðan á byggingaframkvæmdum stendur. Lánið getur verið í formi yfirdráttarheimildar eða ádráttarláns, lánsfjárhæð er metin út frá kostnaðaráætlun.
Dregið er á lánið í takt við aukið virði eignar og framvindu verks. Í stærri verkefnum er gjarnan gerð sú krafa að mat á kostnaðarvirði verks sé metið af utanaðkomandi fagaðila.


Afurðarlán til framleiðslufyrirtækja
Afurðarlán eru lán til sjávarútvegsfyrirtækja, sláturleyfishafa og loðdýrabænda. Lánin eru með veði í framleiðslu fyrirtækja og er gerður lánssamningur til eins árs í senn. Lánin eru í formi yfirdráttarheimildar eða ádráttarláns.
Lánað er að hámarki 50% af kostnaðarvirði afurða hverju sinni. Rík áhersla er lögð á lántaka að upplýsa bankann með réttum hætti um stöðu birgða hverju sinni.
Reikna lán
Einhverjar spurningar?
Ef þú hefur einhverjar spurningar getur þú haft samband við okkur í netspjalli eða sent okkur tölvupóst á fyrirtaeki@arionbanki.is.