Vöxtur - fastir vextir
Þú ákveður binditímann við stofnun reikningsins og vextirnir og innistæða eru bundin allan binditímann. Aðeins er hægt að leggja einu sinni inn á reikninginn. Hægt er að velja um 3, 6, 9, eða 12 mánaða bindingu. Vextir taka mið af væntingum markaðarins á þróun vaxta á binditímanum og gilda þeir vextir sem eru í gildi á stofndegi reikningsins út allan binditímann.
Viðskiptavinur þarf að tilgreina upphæð sparnaðar og skuldfærslureikning við stofnun á Vexti-fastir vextir. Við stofnun reikningsins skuldfærist uppgefin fjárhæð sjálfkrafa af tilgreindum reikningi og að binditíma loknum greiðist höfuðstóllinn ásamt vöxtum inn á uppgefinn reikning.
Vextir eru gefnir upp á ársgrundvelli.
Eiginleikar:- Vextir eru fastir allan binditímann
- Að binditíma loknum greiðist höfuðstóllinn ásamt vöxtum inn á ráðstöfunarreikning
- Óverðtryggður innlánsreikningur
- Innstæðan er bundin í fyrir fram ákveðinn binditíma
Binditími
Binding | Vextir |
---|---|
3 mánuðir | 8,25% |
6 mánuðir | 8,15% |
9 mánuðir | 8,05% |
12 mánuðir | 8,05% |
Athugið að aðeins lykilnotendur geta stofnað sparnaðarreikning.
Nánari upplýsingar um lykilnotendur og stofnun lykilaðgangs í netbanka