Ávöxtun á liðnu ári og áherslur fjárfestingarstefnu Lífeyrisauka 2025

Ávöxtun á liðnu ári og áherslur fjárfestingarstefnu Lífeyrisauka 2025

Árið 2024 var allt í senn viðburðaríkt og krefjandi. Það einkenndist af háu vaxtastigi og lækkandi verðbólgu. Þrátt fyrir mikla óvissu vegna ríkisfjármála, eldsumbrota, kjarasamninga og kosninga endaði árið nokkuð vel á verðbréfamörkuðum. Vaxtalækkunarferli Seðlabankans hófst í október og lækkun verðbólgu gefur vonir um eðlilegra vaxtastig á næstu misserum. Slík þróun hefur ótvírætt jákvæð áhrif á verðbréfamarkaðinn. Á skuldabréfamarkaði urðu því betri skilyrði fyrir fjárfesta og varð töluverð aukning í fjárfestingum erlendra aðila í lengri óverðtryggðum skuldabréfum. Eftir erfiðan fyrri hluta ársins á innlenda hlutabréfamarkaðnum varð viðsnúningur drifinn áfram af væntingum um frekari vaxtalækkanir.

Stýrivextir standa nú í 8,5% eftir að hafa lækkað um 0,75 prósentustig og verðbólgan lækkaði frá 6,7% í 4,8% á árinu 2024. Nafnávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa var á bilinu 7,4% til 8,5% á árinu en óverðtryggðra 5,5% til 8,9%. Verðþróun og ávöxtun skuldabréfa var þó nokkuð stöðug á árinu, þrátt fyrir lækkun stýrivaxta.

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands (OMXI15CAP) hækkaði um 15,9% á árinu 2024. Framan af ári var innlendi hlutabréfamarkaðurinn heldur krefjandi en það dró til tíðinda þegar vaxtalækkunarferli SÍ hófst og félög fóru að skila inn sterkum uppgjörum á þriðja ársfjórðungi. Gengi flestra félaga tók þá að hækka, drifið áfram af væntingum um frekari vaxtalækkanir og sameining JBT og Marels jók flæði sem hafði jákvæð áhrif á markaðinn. Heimsvísitala hlutabréfa (MWXO) hækkaði um 17% í bandaríkjadal á árinu 2024 en um 19,7% á sama tímabili í íslenskum krónum. Erlendir hlutabréfamarkaðir hafa skilað ágætri ávöxtun frá áramótum, þrátt fyrir að efnahagsleg óvissa sé til staðar eins og stríð og forsetakosningar. Ávöxtun hefur enn og aftur verið drifin áfram af fáum tæknifyrirtækjum og væntingar um vöxt, þróun og notkun á gervigreind hefur vissulega verið drifkraftur en þá hefur eftirspurn eftir ákveðnum vörum og þjónustu einnig haldist sterk sem hefur stutt við hlutabréfaverð alþjóðlegra fyrirtækja.

Markaðsaðstæður síðustu ára undirstrika mikilvægi þess að vera með dreift eignasafn til þess að standast sveiflur á mörkuðum. Lífeyrisauki leggur upp úr því að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum til þess að dreifa áhættu sem mest.

Ávöxtun 2024

Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka var á bilinu 6,4% til 13,7% og raunávöxtun 1,6% til 8,9%. Þær fjárfestingarleiðir sem vega þyngst í erlendum hlutabréfum skiluðu hæstu ávöxtun á árinu eins og Lífeyrisauki erlend verðbréf sem er ein af sjö fjárfestingarleiðum Lífeyrisauka. Lífeyrisauki 1 er sú leið sem hefur mest vægi erlendra hlutabréfa í Ævilínu og sú leið sem skilaði næst hæstu ávöxtun yfir árið 2024.

Hér fyrir neðan má sjá ávöxtun á ársgrundvelli til 10 ára m.v. 31.12.2024. 10 ára nafnávöxtun er á bilinu 5,4% til 7,7% og raunávöxtun 1,3% til 3,5%.

Fjárfestingarstefna 2025

Starfsstjórn Lífeyrisauka endurskoðar fjárfestingarstefnu sjóðsins að minnsta kosti árlega og hefur nú undirritað nýja fjárfestingarstefnu fyrir árið 2025. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að auka vægi og áhættudreifingu erlendra eigna. Í nýrri stefnu eru helstu breytingar hjá Lífeyrisauka 4 og Lífeyrisauka – Erlend verðbréf. Hjá Lífeyrisauka 4 er dregið úr vægi erlendra skuldabréfa og innlendra skuldabréfa en aukið við erlendar sérhæfðar fjárfestingar á móti. Hjá Lífeyrisauka – Erlend verðbréf er dregið úr vægi erlendra skuldabréfa og aukið vægi á móti í erlendum hlutabréfum. Fjárfestingarstefna sjóðsins í heild er birt á vefsíðu sjóðsins en hana má nálgast hér.

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Lífeyrisauka 4 og Lífeyrisauka – Erlend veðbréf breytast eins og hér segir:

  • Innlend skuldabréf fara úr:
    • 78% í 77% hjá Lífeyrisauka 4.
    • 0% í 1% hjá Lífeyrisauka – Erlend verðbréf
  • Erlend hlutabréf fara úr:
    • 70% í 80% hjá Lífeyrisauka – Erlend verðbréf
  • Erlend skuldabréf fara úr:
    • 3% í 2% hjá Lífeyrisauka 4
    • 25% í 14% hjá Lífeyrisauka – Erlend verðbréf
  • Erlendar sérhæfðar fjárfestingar fara úr:
    – 3% í 5% hjá Lífeyrisauka 4

Markmið um hlutfall eignaflokka hjá Lífeyrisauka 1, 2 og 3 helst óbreytt á milli ára.

 

Fréttasafn

14. febrúar 2024

Fræðslufundur

Fræðslufundi um Lífeyrisauka, viðbótarlífeyrissparnað Arion, verður streymt á Facebook síðu Arion...

LESA NÁNAR

31. mars 2023

Rafræn yfirlit

Nýlega samþykkti Alþingi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem varða m.a. upplýsingagjöf til...

LESA NÁNAR