24. janúar 2022
Glíman við tímann
„Hvaða áramótaheit strengdir þú?“ Fyrsti vinnudagur á nýju ári felur undantekningalaust í sér sömu...
LESA NÁNAR„Hvaða áramótaheit strengdir þú?“ Fyrsti vinnudagur á nýju ári felur undantekningalaust í sér sömu spurninguna við kaffivélina. Ég á alltaf erfitt með þessa spurningu því ég strengi sömu áramótaheitin ár eftir ár og þyki því óhemju óspennandi. Ástæðan er ekki sú að markmiðin náist ekki og því þurfi að endurtaka sama leik að ári heldur sú að í grunninn eru alltaf sömu atriðin sem ég vil viðhalda og leggja áfram áherslu á. Góða líkamlega og andlega heilsu, góð og uppbyggileg tengsl við vini og vandamenn og fjárhagslegt heilbrigði til langtíma. Ef vel er að gáð miða þessi markmið í raun öll að því sama, ánægjulegum og gefandi lífeyrisárum. Nú eru tæp þrjátíu ár í að ég nái lífeyristöku aldri og því má vera að það þyki skjóta skökku við að horfa til þess tíma, en góð langtímamarkmið geta jafnframt byggt undir daginn í dag, eitt þarf ekki að útiloka annað. Að velta fyrir sér lífeyrissjóðnum sínum er í senn langtímamarkmið og áhugavert til skemmri tíma.
Á árinu 2021 höfum við séð aukinn áhuga á fjárfestinum sem hefur birst í verulega aukinni þátttöku og áhuga almennra fjárfesta í hlutabréfamarkaði. Sú þróun er afar ánægjuleg og til marks um aukna umræðu og þekkingu í samfélaginu. Lífeyrissjóðir eru jafnframt þátttakendur á þeim markaði og aukin áhugi á fjárfestingum ætti því að hvetja til aukins áhuga á lífeyrissjóðum. Mikilvægt að hafa í huga að stærsti sparnaður hins almenna fjárfestis liggur öllu jafna í lífeyrissjóði en þangað streymir árlega að jafnaði ígildi tveggja mánaðarlauna. Fjárfestingar lífeyrissjóða hafa áhrif víða, þeir fjárfesta m.a á skráðum markaði, þeim sama og fólk hefur veitt aukna athygli síðustu misseri. Þá fjárfesta lífeyrissjóðir einnig í áhugaverðum óskráðum verkefnum, innviðafjárfestingum og nýsköpun svo eitthvað sé nefnt, sem spennandi er að fylgjast með á sama tíma og slíkar fjárfestingar drífa áfram gróskumikið og öflugt atvinnulíf. Þá vitum við líka að fjárfestingar og hvert þeim er beint getur haft töluverð áhrif á þá framtíð sem við erum að móta, bæði hvað varðar umhverfis- og samfélagsmál og því mikilvægt að við séum meðvituð um hvar okkar stærsti sparnaður liggur og hvaða áhrif hann hefur.
Hver er mín staða í dag og hvernig líta eftirlaunaárin út miðað við óbreyttar áherslur. Er samspil séreignar og samtryggingar eins og ég vil hafa það. Í hverju er lífeyrissjóðurinn minn að fjárfesta, hvernig er fjárfestingarstefna sjóðsins og stefna um ábyrgar fjárfestingar, hver hefur ávöxtunin verið. Allt þetta eru hlutir sem vert er að skoða árlega og tilvalið að setja inn sem árlegt áramótaheiti.
Upplýsingar um þína eigin stöðu má nálgast í lífeyrisgáttinni og á mínum síðum þíns lífeyrissjóðs nú eða í appi hjá þeim sjóðum sem þangað eru komnir. Lífeyris- og séreignarsjóðir birta svo hver fyrir sig ítarlegar upplýsingar á heimasíðum sínum um fjárfestingarstefnur, ávöxtun og fjárfestingar. Ólíkt hlutfall hlutabréfa og skuldabréfa sem og erlendra eigna svo eitthvað sé nefnt. Þá eru sjóðirnir einnig með stefnur um ábyrgar fjárfestingar með ólíkum áherslum sem áhugavert er að kynna sér. Þá taka bæði Fjármálaeftirlitið og Landssamtök lífeyrissjóða saman greinagóðar upplýsingar um ávöxtun, fjárfestingar og árangur lífeyrissjóða sem hentugar eru til samanburðar.
Að setja sér sama markmið ár eftir ár þýðir ekki að markmiðið hafi ekki náðst árið áður heldur að um lífsstíl og stöðugleika sé að ræða. Að setja sér markmið fyrir árið 2022 og öll þau ár sem á eftir koma um að fylgjast með lífeyrissparnaðinum sínum er til marks um meðvitaða stefnu í lífinu. Að fylgja eftir sínum stærsta sparnaði, vita hvernig honum er ráðstafað, hvaðan ávöxtunin kemur og hvernig sparnaðurinn hefur áhrif, bæði á þitt eigið líf, atvinnulífið og samfélagið allt.
„Hvaða áramótaheit strengdir þú?“ Fyrsti vinnudagur á nýju ári felur undantekningalaust í sér sömu...
LESA NÁNARSnædís Ögn Flosadóttir rekstrarstjóri Lífeyrisauka var með erindi á ráðstefnu Stjórnvísi um breyttar...
LESA NÁNARKrafa um að fjárfestar hugi að fleiri atriðum en eingöngu hefðbundnum fjárhagslegum þáttum í...
LESA NÁNARSnædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnu...
LESA NÁNARArion banki er aðili að nýjum reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi sem styður við...
LESA NÁNARLagabreytingar og aukin vitundarvakning um málefni samfélags- og umhverfisábyrgðar fyrirtækja hefur...
LESA NÁNARHjá mörgum ríkir um það þegjandi en skýrt samkomulag að þátttaka í fjárfestingum sem augljóslega eru...
LESA NÁNARAs a group, we are likely lagging behind our fellow Scandinavians here, as a result of the events of...
LESA NÁNARVið notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".