Sérhæfðar innlendar fjárfestingar Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands

Sérhæfðar innlendar fjárfestingar Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands

Áhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan fjárfestingartíma þar sem með henni má halda fram að dregið sé úr sveiflum í ávöxtun. Með hliðsjón af þessu hefur stjórn LSBÍ sett sér það markmið í fjárfestingarstefnu undanfarinna ára að byggja upp dreift og fjölbreytt eignasafn bæði innanlands og erlendis.

Segja má að með breyttu fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hafi LSBÍ hafið vegferð sína í innlendum sérhæfðum fjárfestingum. Slíkar fjárfestingar fela almennt í sér lengri binditíma, eru oft óskráðar og þar með að jafnaði tregseljanlegri en hefðbundnari fjárfestingar. Ávöxtunarkrafa til sérhæfðra fjárfestinga er yfirleitt hærri en til hefðbundinna fjárfestingarkosta en að sama skapi fylgir þeim oft heldur meiri áhætta. Dæmi um sérhæfðar fjárfestingar eru framtaks-, vísis-, innviða- og fasteignafjárfestingar en einnig sérhæfð lán og önnur sambærileg verkefni. Form þessara fjárfestinga er yfirleitt sjóðafyrirkomulag. Sérþekking hefur byggst upp innanlands undanfarin ár og talsverð gróska hefur verið efnahagsumhverfi fyrirtækja.

 

Eins og hefur verið nefnt eru sérhæfðar fjárfestingar ólíkar hefðbundnari fjárfestingum að því leyti að fyrstu 12 til 18 mánuði má gera ráða fyrir að fjárfestingin sé að öllu jöfnu enn á sama verði og hún var keypt á og því enginn ábati eða tap fyrst um sinn. Gjarnan er fjárfestingartímabil slíkra sjóða um fjögur ár en rekstrartími þeirra getur orðið vel yfir áratug. Ferli í verðþróun sérhæfðra fjárfestinga er líkt við lögun J-kúrfu en þar er um að ræða sjónræna framsetningu á þeirri staðreynd að kostnaður kemur oft sem undanfari ábata sem kemur síðar. Í upphafi ferils sérhæfðra fjárfestinga getur kostnaður verið hár m.a. vegna vinnu á skoðun fjárfestingakosta, meðan fyrirtækin eru að byggjast upp svo og öðrum stofnkostnaði fjárfestinga. Aftur á móti eru væntingar um að fjárfestingarnar skili ávöxtun sinni þegar líða tekur á fjárfestingartímabilið. Endanleg niðurstaða af fjárfestingu er þó ekki ljós fyrr en við sölu eigna og sjóðnum hefur verið endanlega slitið.
Frá árinu 2011 hefur eignaflokkurinn, innlendar sérhæfðar fjárfestingar í heild sinni, skilað um 1.858 milljón króna hagnaði af heildarfjárfestingu upp á um 3.845 milljónir króna. Í texta og myndum hér fyrir neðan má sjá árangur einstakra fjárfestinga sem eru nýhafnar (ljós bláar súlur), komnar langt á veg (bláar súlur) eða er lokið (dökk gráar súlur).

Framtaksfjárfestingar:
  • Búvellir (Hagar): Árið 2011 fjárfesti LSBÍ í Búvöllum sem var stofnað utan um fjárfestingu í fyrirtækinu Högum. Árleg ávöxtun er ekki mæld þar sem LSBÍ fékk útgreiðslu innan árs. Mælikvarði á árangri af þessari fjárfestingu er því metin þannig að fyrir hverja 1 krónu sem fjárfest var í fékk LSBÍ 1,55 kr tilbaka.
  • Stefnir íslenski athafnasjóðurinn: Árið 2011 ákvað LSBÍ að taka þátt í Íslenska athafnasjóðnum á vegum Stefnis sem meðal annars fjárfesti í Högum, Sjóvá og 66 Norður. Sjóðnum var slitið árið 2022. Árleg ávöxtun var um 17%.
  • Kjölfesta: Árið 2012 fjárfesti LSBÍ í framtakssjóðnum Kjölfestu sem var samstarf Virðingar og ALM ráðgjafar. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í Meniga, Oddi, Senu, Íslands hótelum. Árleg ávöxtun er um 1%.
  • Stefnir íslenski athafnasjóðurinn II: Árið 2014 fjárfesti LSBÍ í framhaldssjóð Íslenska athafnasjóðsins á vegum Stefnis, íslenska athafnasjóðsins II. Hann fjárfesti meðal annars í Festi, Skeljungi, Verne Global og Icelandia (áður Kynnisferðir). Árleg ávöxtun er um 15%.
  • Framtaksfjárfestingarsjóðurinn HORN II: Árið 2013 ákvað LSBÍ að fjárfesta í framtaksfjárfestingasjóðnum Horn II á vegum sjóðastýringarfyrirtækis Landsbréfa sem meðal annars fjárfesti í félögunum Hvatningu, stærsta eiganda Bláa Lónsins, Fáfni Offshore og Kea hótelum. Sjóðnum var slitið árið 2022. Árleg ávöxtun var um 25%.
  • Edda slhf: Árið 2013 fjárfesti LSBÍ í innlenda framtakssjóðnum Eddu hjá sjóðastýringarfyrirtækinu Virðingu. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í Dominos, Securitas, Marorku og Íslands hótelum. Árleg ávöxtun er um 9%.
  • SF V (Festi): Árið 2014 fjárfesti LSBÍ í félagi sem var stofnað utan um fjárfestingu í fyrirtækinu Festi, sem á sínum tíma voru meðal annars verslanirnar Krónan og Elko. Sjóðnum var slitið árið 2020. Árleg ávöxtun fjárfestingarinnar var um 27%.
  • PCC Bakki: Árið 2015 fjárfesti LSBÍ í kísilverksmiðju PCC við Húsavík. Þrátt fyrir að líftíma verkefnisins sé ekki lokið og ekki komið að endapunkti þá hafa erfiðleikar í rekstri og aukin fjárþörf orðið til þess að sjóðurinn hefur fært eignina niður í 63% af fjárfestingu.
  • Sameinað Sílikon: Árið 2015 fjárfesti LSBÍ í kísilverinu United Silicon í Helguvík á Reykjanesi. Sívaxandi rekstrarerfiðleikar og rökstuddur grunur um sviksemi varð þess valdandi að fjárfestingin tapaðist að endingu að fullu árið 2017.
  • Stefnir íslenski athafnasjóðurinn III: Árið 2016 fjárfesti LSBÍ í framhaldssjóði íslenska athafnasjóðsins á vegum Stefnis sem meðal annars fjárfesti í Reykjavík EDITION, Terra, HD (áður Hamri), Lyfju og Men&Mice. Árleg ávöxtun er um 14%.
  • Framtaksfjárfestingarsjóðurinn HORN III: Árið 2016 fjárfesti LSBÍ í framtaksfjárfestingarsjóðnum Horn III á vegum sjóðastýringarfyrirtækisins Landsbréfa sem meðal annars fjárfestir í Ölgerðinni, Hópbílum og Bílaleigu Flugleiða. Árleg ávöxtun er um 4%.
  • TFII: Árið 2017 fjárfesti LSBÍ í TFII, upphaflega á vegum Íslenskra verðbréfa, nú í rekstri Landsbréfa, sem hefur fjárfest í Hreinsitækni, Hringrás, Coripharma og Genis. Árleg ávöxtun um -2%.
  • Hvatning (Bláa lónið): Árið 2019 fjárfesti LSBÍ í sjóði á vegum Landsbréfa sem fer með eignarhlut í Bláa lóninu. Árleg ávöxtun um 9%.
  • Blávarmi (Bláa lónið): Árið 2019 fjárfesti LSBÍ í Blávarma sem fjárfestir í Bláa lóninu. Árleg ávöxtun um 9%.
  • Coripharma Holding hf.: Árið 2023 fjárfesti LSBÍ í félaginu Coripharma, sem er samheitalyfjaþróunar og lyfjaframleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði. Árleg ávöxtun um 2%.

Fjárfestingar í innviðum:
  • Jarðvarmi (HS Orka): Árið 2011 fjárfesti LSBÍ í HS Orku, sem er innviðafjárfesting í tengslum við sölu endurnýjanlegra orkugjafa. Árleg ávöxtun frá þeim tíma er um 7%.
  • HSV Eignarhaldsfélag (HS Veitur): Árið 2014 fjárfesti LSBÍ í félaginu HS Veitum, sem er innviðafjárfesting í tengslum við vatnsdreifikerfi. Árleg ávöxtun frá fjárfestingu er um 23%.
  • Innviðir fjárfestingar: Árið 2015 fjárfesti LSBÍ í innviðasjóði í rekstri Summu sem m.a. fer með eignarhlut í HS Veitum og Verðbréfamiðstöð Íslands. Árleg ávöxtun er um 11%.
  • Innviðir fjárfestingar II: Árið 2022 fjárfesti LSBÍ í framhalds innviðasjóði í rekstri Summu sem fer m.a. með eignarhlut í Mílu ehf. Þessi fjárfesting er skammt á veg kominn.
Fasteignafjárfestingar:
  • Fasteignasjóður SRE I: Árið 2011 tók LSBÍ þátt í fasteignasjóðnum SRE I á vegum sjóðastýringarfyrirtækis Stefnis sem var stofnað utan um kaup á fasteigninni Þingvallastræti 23 (Icelandair Hótelinu á Akureyri). Sjóðnum var slitið árið 2017. Árleg ávöxtun var um 13%.
  • Fasteignasjóður SRE II: Árið 2012 tók LSBÍ þátt í fasteignasjóðnum SRE II á vegum sjóðastýringarfyrirtækis Stefnis þar sem meðal annars var fjárfest í húsnæði Nýherja, Hótel Borg og höfuðstöðvum Advania. Sjóðnum var slitið árið 2019. Árleg ávöxtun var um 24%.
  • FAST - I: Árið 2012 tók LSBÍ þátt í fasteignasjóðnum FAST-I á vegum sjóðastýringarfélagsins Íslandssjóða sem meðal annars fjárfesti í Höfðatorgi, húsnæði Ríkislögreglustjóra og Fjársýslu ríkisins. Sjóðnum var sllitið árið 2020. Árleg ávöxtun var um 9%.

Fjárfestingar í sérhæfðum lánum:
  • Veðskuldabréfasjóðir: Á árunum 2014-2023 hefur LSBÍ fjárfest í veðskuldabréfasjóðunum Alda Credit Fund (II, III), Veðskuld (II, III), ST1 fagfjárfestasjóður, SÍL, SÍL 2 og Landsbréf Veðskuldabréfasjóð (I, II) en seint á síðasta ári var fjárfest í Alda Credit Fund IV og SIV Credit Fund. Um er að ræða fjárfestingu í innlendum veðskuldabréfum þar sem undirliggjandi eru meðal annars skuldabréf með veð í fasteignum. Árleg ávöxtun veðskuldabréfasjóðanna er um 7%.
  • Ármúli lánasafn: Árið 2015 fjárfesti LSBÍ í fagfjárfestasjóði í rekstri Stefnis. Um var að ræða eignatryggt skuldabréf til fjármögnunar á skilgreindu lánasafni MP banka. Sjóðnum var slitið árið 2018. Árleg ávöxtun var um 7%.
  • AL 2 fagfjárfestasjóður: Árið 2018 fjárfesti LSBÍ í AL 2 á vegum Stefnis sem var fjárfesting í óskráðum skuldaviðurkenningum fyrirtækja í gegnum Kviku banka hf. Sjóðnum var slitið árið 2021. Árleg ávöxtun var um 5%.

Spálíkan

Þegar fjárfest er mengi sérhæfðra fjárfestinga svo sem þegar skuldbinding er gerð um fjárfestingu í sjóð þá ólíkt beinni stakri fjárfestingu skuldbindur fjárfestir sig til þátttöku sem dregið er á fjárfestingartímabili sjóðsins. Sjóðurinn sem fjárfest er í innheimtir svo af skuldbindingunni í skrefum eftir því sem fjárfestingartækifæri koma fram. Loks greiðir sjóðurinn fjárfestum eftir því sem fjárfestingin skilar sér til baka.

Í fjárfestingaráætlunum sínum hvað varðar innlendar sérhæfðar fjárfestingar notast LSBÍ við spálíkan sem þróað var af Dean Takahashi og Seth Alexander frá Yale-háskóla. Líkanið byggir á forsendum um skuldbindingar fjárfestis, í sjóðum sem stökum fjárfestingum, hraða innkallana hjá sjóðum sem fjárfest hefur verið í, væntar útgreiðslur, líftíma, svo og áætlaðan vaxtahraða á eignamengi fjárfestis o.fl. Á grundvelli líkansins fást svo upplýsingar um hvernig ætla megi að innkallanir, útgreiðslur og hrein eign þróist yfir tíma. Þessar niðurstöður eru mikilvægar svo meta megi hvaða fjárfestingar LSBÍ þarf að leggja í til að ná og viðhalda markmiðum sínum um eignasamsetningu til framtíðar.

Framtíðarhorfur

Í tilviki LSBÍ þar sem að lífeyrisgreiðslur eru hærri en iðgjöld þá er mikilvægt að vera með áhættuminni og auðseljanlegar eignir í safninu. Síðustu misseri hefur verið dregið úr fjárfestingum í innlendum sérhæfðum fjárfestingum þar sem þær fela almennt í sér lengri binditíma, eru tregseljanlegri og rekstrartími þeirra getur orðið vel yfir áratug. Markmið sjóðsins í innlendum sérhæfðum fjárfestingum er 5% af eignasafni en núverandi staða er yfir því marki sem má að stórum hluta skýra vegna góðrar ávöxtunar í innviðafjárfestingum sem sjóðurinn hefur tekið þátt í.

 

Fréttasafn

01. nóvember 2022

Málefni ÍL-sjóðs

LSBÍ er einn af eigendum að skuldabréfum með ríkisábyrgð sem Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á árið 2004...

LESA NÁNAR

26. september 2017

Sjóðfélagayfirlit

Yfirlit sjóðfélaga LSBÍ eru komin í hús. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða...

LESA NÁNAR

29. apríl 2014

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 28. maí...

LESA NÁNAR

29. apríl 2013

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 29. maí...

LESA NÁNAR

16. maí 2012

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 30. maí...

LESA NÁNAR