Forsendur fyrir láni
- Veðhlutfall má aldrei fara yfir 70% af markaðsvirði við kaup og fasteignamati við endurfjármögnun
- Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrðarhlutfall, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35% eða 40% hjá þeim sem eru að kaupa í fyrsta skipti
- Lánið er alltaf á fyrsta veðrétti
- Lánstími: 5-40 ár
- Lágmarkslán er kr. 1.000.000 við hverja lántöku
Í eftirtöldum tilvikum er gerð krafa um aukinn afgang í greiðslumati:
- Viðskiptavinir sem ekki eru fyrir með íbúðalán hjá Arion banka (gildir þó ekki fyrir fyrstu kaupendur)
- Viðskiptavinir sem vilja taka íbúðalán með breytilegum vöxtum (gildir líka um fyrstu kaupendur)
Þá gildir að ef heildarumsókn íbúðalánsins er hærri en 40.000.000 kr. þarf afgangur í greiðslumati að vera 10.000 kr. fyrir hverja milljón umfram 40.000.000 kr.
Dæmi: Fyrir 50.000.000 kr. íbúðalán þarf að vera með 100.000 kr. afgang í greiðslumati.
Upplýsingar um lántökugjald er að finna í verðskrá bankans, sjá hér.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á ibudalan@arionbanki.is.