Arion og Vörður

Samstarf um betri þjónustu

Það einfaldar lífið að vera með allt á sama stað. Árangur þinn skiptir okkur máli og viljum við að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þar af leiðandi færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði.

Fáðu tilboð í tryggingar á örfáum sekúndum

Það er auðvelt að fá tilboð í tryggingar hjá Verði. Eina sem þú þarft að gera er að ná í Arion appið, smella á Meira og svo á Mínar tryggingar.

Ef þér líst vel á tilboðið klárar þú kaupin með einum smelli. Þetta er svona einfalt.

Sækja Arion appið fyrir iOS Sækja Arion appið fyrir Android

 

Átt þú von á Arion endurgreiðslu?

Viðskiptavinir Arion sem eru tryggðir hjá Verði fá 5% endurgreiðslu af tryggingum sínum ef þeir eru tjónlausir.

Þú getur sótt um endurgreiðsluna þína með fáeinum smellum í appinu. Þar hefurðu líka skýra yfirsýn yfir tryggingarnar þínar og getur fylgst með endurgreiðslunni hækka eftir hvern tjónlausan mánuð.

Nánari upplýsingar um Arion endurgreiðslu

Betri þjónusta í útibúum

Viðskiptavinir okkar geta nú sótt sér trausta og öfluga trygginga- og bankaþjónustu á einum stað:

  • Höfða
  • Smáratorgi
  • Selfossi
  • Stykkishólmi
  • Akureyri
  • Egilsstöðum

Bókaðu fund og fáðu tilboð í tryggingarnar


Betri þjónusta fyrir fyrirtæki

Öflugt teymi á fyrirtækjasviði sér til þess að fyrirtæki í viðskiptum við Arion fái ævinlega bestu mögulegu þjónustu, sérsniðna að þeirra kröfum.

Við liðsinnum stórum sem smáum fyrirtækjum og sjáum um allar banka- og tryggingaþarfir þeirra.

Fáðu tilboð í fyrirtækjatryggingarnar

Vörður - tryggingar

Vörður er alhliða tryggingafélag sem býður tryggingalausnir fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Félagið leggur áherslu á einföld og þægileg vátryggingaviðskipti á samkeppnishæfu verði.

Starfsfólk Varðar vinnur markvisst að því að efla þjónustu og vöruframboð. Á undanförnum árum hefur Vörður skipað efstu sætin í Íslensku ánægjuvoginni sem sýnir mikið traust viðskiptavina til félagsins og þann árangur sem náðst hefur í uppbyggingu þess.

Vörður leggur mikla áherslu á góðan starfsanda og hefur félagið mælst með hæstu starfsánægju íslenskra tryggingafélaga.

Komdu og vertu í hópi ánægðustu viðskiptavina tryggingafélaga.

Sjá upplýsingar um tryggingar á vef Varðar