Netbanki Arion
Með aðgangi að netbankanum getur þú stundað öll helstu bankaviðskipti þín á netinu. Netbankinn býður upp á fjölmarga möguleika í bankaþjónustu og allt saman á styttri tíma en það tæki þig að fara í útibú.
Öruggari bankaþjónusta
Netbankinn er ekki bara fljótlegri og þægilegri kostur í bankaþjónustu heldur einnig öruggari. Netbankinn er á https svæði sem er öruggt og dulkóðað.
Innskráning með rafrænum skilríkjum, app auðkenningu, PIN númerum og leyninúmerum reikninga gerir okkur kleift að hámarka öryggi þitt og draga úr líkum á fjársvikum.
Stofnaðu reikninga og pantaðu kort
Það hefur aldrei verið þægilegra að stofna sparnaðarreikning. Í netbankanum getur þú valið úr fjölda reikninga. Þú velur þann reikning sem hentar best.
Berðu saman kort og finndu út hvaða kort hentar þér best. Þú pantar svo nýtt kort með einum smelli.
Öruggari bankaþjónusta
Netbankinn er ekki bara fljótlegri og þægilegri kostur í bankaþjónustu heldur einnig öruggari. Netbankinn er á https svæði sem er öruggt og dulkóðað.
Innskráning með rafrænum skilríkjum, app auðkenningu, PIN númerum og leyninúmerum reikninga gerir okkur kleift að hámarka öryggi þitt og draga úr líkum á fjársvikum.
Fjölbreytt þjónusta
Þú getur séð um eigin reikninga og greiðslur, stofnað sparnaðarreikninga, pantað debet og kreditkort, stundað verðbréfaviðskipti og svo miklu meira.
Lífeyrissparnaður
Í netbankanum getur þú fylgst með stöðunni á lífeyrissparnaðinum þínum.
Innheimtuþjónusta
Með innheimtuþjónustu sparast bæði tími og peningar þar sem þú getur hvenær sem er skráð, breytt og/eða fellt niður kröfur í netbankanum.
Tilkynningar um
greiðslu eða stöðu
Viltu fá að vita þegar launin þín eru komin? Eða þegar staðan fer undir ákveðna upphæð? Það er ekkert mál, þú velur hvaða tilkynningar þú færð sendar.
Heimilisbókhald
Með heimilisbókhaldi í netbankanum færðu betri yfirsýn yfir fjármál heimilisins.
Bankaþjónusta
hvar og hvenær sem er
Í netbankanum er hægt að framkvæma 96% af allri þeirri bankaþjónustu sem við bjóðum uppá, allt þegar þér hentar.
Spurt og svarað
Er netbankinn fyrir fyrirtæki líka?
Já, fyrirtækið þitt getur verið með netbanka Arion banka.
Hvernig stunda ég verðbréfaviðskipti?
Þú smellir á „Verðbréf“ og ef þú átt vörslureikning getur þú farið beint og stundað verðbréfaviðskipti. Ef þú átt ekki vörslureikning þá sækir þú um hann með því að velja „Umsókn um vörslureikning“. Athugið að það getur tekið einn virkan dag að stofna vörslureikning.
Kostar að vera með netbankann?
Nei, það kostar ekkert að vera með netbankann.
Er netbankinn einungis á íslensku?
Nei, netbankinn er einnig til á ensku og pólsku.
Er netbankinn öruggur?
Já, netbankinn er öruggur. Netbankinn er á https svæði sem táknar öruggt og dulkóðað svæði. Viðskiptavinir geta notað rafræn skilríki, App auðkenningu og auðkenningu með SMS. Einnig eru PIN númer og leyninúmer reikninga til staðar. Allt er þetta gert til að hámarka öryggi þitt og draga úr líkum á fjársvikum.
Hvar panta ég kort?
Þú smellir á „Vöruúrval“, finnur þér kort við hæfi og ýtir á „Stofna“. Þar velur þú heimild og skuldfærslureikning áður en þú velur hvert þú vilt fá kortið sent.
Við sendum kortin í útibú eða á lögheimili þitt og þau taka 4-5 virkra daga að berast í útibú en 5-6 virka daga að berast á lögheimili.
Hvernig stofna ég reikninga?
Þú smellir á „Vöruúrval“ og velur svo hvort þú viljir debetkorta-, sparnaðar- eða gjaldeyrisreikning. Þú velur þér svo reikning og smellir á „Stofna“ og velur leyninúmer og smellir á „Staðfesta“. Reikningarnir verða svo virkir strax.
Er aldurstakmark í netbankanum?
Já, það er aldurstakmark. Einstaklingar eldri en 15 ára geta stofnað netbankaaðgang. Einstaklingar á aldrinum 9-15 ára geta stofnað netbanka með samþykki forráðamanns.
Hvernig stofna ég netbanka?
Þú smellir á „Stofna netbanka“ og velur síðan hvernig þjónustu þú vilt. Ferlið tekur aðeins um fimm mínútur frá upphafi til enda.
Til þess að klára ferlið rafrænt þarf rafræn skilríki. Ef þú átt ekki rafræn skilríki þá getur þú komið í næsta útibú og við aðstoðum þið við að virkja rafræn skilríki eða stofna til viðskipta.