Kosningar EFÍA 2024

Í kjölfar ársfundar EFÍA 2024 kjósa sjóðfélagar með rafrænum hætti til stjórnar og um tillögur stjórnar til samþykktabreytinga.

Í stjórnarkjöri er kosið um tvö sæti varmanna, nálgast má upplýsingar um frambjóðendur hér.

Í kosningu um tillögu stjórnar til samþykktabreytinga eru sjö tillögur sem liggja fyrir. Nánar er gerð grein fyrir þeim í skjali sem fylgir hér.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér tillögurnar vel áður en þeir skrá sig inn í kjörklefann. 

Smelltu hér til að kjósa 

Upplýsingar um framkvæmd kosninga

Kosningar verða með rafrænum hætti, kosningavef verður stillt upp á heimasíðu sjóðsins og auðkenna sjóðfélagar sig inn í kjörklefann með rafrænum skilríkjum eða íslykli.

  • Opnað var fyrir kosningu kl. 13:00 föstudaginn 31. maí 2024
  • Kosning stendur til 13:00 föstudaginn 7. júní 2024
  • Falli atkvæði til sætis varamanna jafnt verður varpað hlutkesti um sætið að hlutaðeigandi frambjóðendum viðstöddum
  • Tilkynnt verður um niðurstöðu kosninga á heimasíðu sjóðsins

Þar sem eitt framboð hefur borist í eitt sæti aðalmanns er sjálfkjörið í það sæti.

Á kjörseðli eru því nöfn þriggja frambjóðenda vegna tveggja sæta varamanna. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal kjósa í öll sæti sem í boði eru og þurfa gildir kjörseðlar því að innihalda kosningu í tvö sæti varamanna.

Á kjörseðli eru einnig sjö tillögur stjórnar til samþykktabreytinga.
 

EFÍA ber að tryggja að fylgt sé 29. gr. laga nr. 129/1997, um samsetningu stjórnar. Það felur í sér að tryggja skal að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Sama gildir um kynjahlutföll meðal varamanna. Af samsetningu þeirra varamanna sem eru þegar kjörnir og skipaðir í stjórn er ljóst að í þau tvö sæti sem laus eru nú þurfa að veljast varamenn af hvoru kyni. Af samsetningu þeirra varamanna sem eru þegar kjörnir og skipaðir í stjórn er ljóst að í þau tvö sæti sem nú er verið að kjósa um þurfa að veljast varamenn af hvoru kyni.