Reglur og skilmálar
Arion banki hefur sett sér reglur og skilmála til að stuðla að góðum stjórnarháttum og tryggja fylgni við lög og reglur sem gilda um starfsemi bankans.
Reglur um flokkun viðskiptavina
Reglur um meðferð upplýsinga um viðskiptavini
Reglur um viðskipti starfsmanna
Reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Reglur um kaup á upplýsingatækniþjónustu
Reglur um meðferð hagsmunaárekstra
Almennir viðskiptaskilmálar - í gildi frá 18. apríl 2021
Almennir viðskiptaskilmálar - í gildi frá 18. nóvember 2024
Almennir skilmálar innlánsreikninga - í gildi frá 24. apríl 2024
Almennir skilmálar innlánsreikninga - í gildi frá 18. nóvember 2024
Debetkortaskilmálar - í gildi frá 7. maí 2019
Debetkortaskilmálar - í gildi frá 18. nóvember 2024
Kreditkortaskilmálar - í gildi frá 7. maí 2019
Kreditkortaskilmálar - í gildi frá 18. nóvember 2024
Innlagnarkortaskilmálar - í gildi frá 10. mars 2020
Almennir skilmálar peningarmarkaðsinnlána - í gildi frá 1. október 2020
Almennir markaðsskilmálar fyrir verðbréfaviðskipti - í gildi frá 14. nóvember 2024
Netbankaskilmálar - í gildi frá 2. september 2024
App skilmálar - í gildi frá 2. september 2024
Skilmálar fyrir app Einkaklúbbsins
Notendaskilmálar Arion banka vegna Apple Pay
Notendaskilmálar fyrir símaveski Arion banka
Skilmáli Arion banka fyrir öflun og notkun lánshæfismats og fjárhagslegra upplýsinga
Almennir viðskiptaskilmálar
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 17. apríl 2021
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 9. mars 2020
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 15. mars 2019
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 6. júní 2018
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 15. mars 2017
Almennir viðskiptaskilmálar - giltu til og með 15. mars 2015
Almennir skilmálar innlánsreikninga
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 23. apríl 2024
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 31. maí 2023
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 17. apríl 2021
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 9. mars 2020
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 15. mars 2019
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 15. mars 2017
Almennir skilmálar innlánsreikninga - giltu til og með 15. mars 2015
Greiðsluþjónusta
Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Með verklagsreglum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka leitast Arion banki við að uppfylla í hvívetna ítrustu kröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
Reglurnar eru settar á grundvelli tilmæla FATF og laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka ásamt tengdum reglum og tilmælum.
Markmið reglna þessara er að leitast við að hindra að þjónusta og starfsemi Arion banka sé misnotuð til að þvætta fjármuni eða til fjármögnunar hryðjuverka.
Stefna um aðgerðir gegn fjármálaglæpum
Öllum starfsmönnum bankans ber að kynna sér efni reglnanna og fylgja þeim í starfi sínu og veitir bankinn starfsfólki reglulega fræðslu þar að lútandi.
Upplýsingar fyrir fjármálafyrirtæki um varnir Arion banka gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
US Patriot Act Certification - Arion Bank
Wolfsberg Questionnaire
SFF hefur gefið út upplýsingaefni sem er bæði ætlað starfsmönnum fjármálafyrirtæki og viðskiptavinum þeirra. Efnið er aðgengilegt hér fyrir neðan.
Áhrif nýrra laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á einstaklinga
Áhrif nýrra laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka á lögaðila
Siðareglur Arion banka
Lyklar að ábyrgri hegðun og ákvarðanatöku
Við hjá Arion banka leggjum ríka áherslu á siðferðisleg gildi og erum meðvituð um þá staðreynd að starfsemi bankans hefur áhrif á ólíka hagsmunaaðila og samfélagið í heild sinni. Siðareglum þessum er ætlað að stuðla að ábyrgri hegðun og ákvarðanatöku í Arion banka.
Siðareglurnar gilda jafnt um stjórn bankans, stjórnendur og annað starfsfólk. Það er á ábyrgð bankastjóra að tryggja að þeim sé fylgt. Siðareglurnar eru endurskoðaðar árlega og staðfestar af stjórn.
- Við komum fram við aðra af virðingu
Við virðum ólík sjónarmið og trúum því að gagnrýnin umræða skapi grundvöll að góðum ákvörðunum. Við komum fram við aðra af virðingu og mismunum engum, svo sem á grundvelli kyns, kynvitundar, kynhneigðar, uppruna, þjóðernis, litarhafts, aldurs, fötlunar, trúar eða annarrar stöðu.
- Við gætum ólíkra hagsmuna með sjálfbærni að leiðarljósi
Við gætum hagsmuna allra hagsmunaaðila bankans til lengri tíma litið, þ.e. viðskiptavina, fjárfesta, starfsfólks og samfélags. Við leitumst við að gera hagsmunaaðilum grein fyrir mögulegum hagsmunaárekstrum. Við höfum sjálfbærni að leiðarljósi og mætum þannig þörfum hagsmunaaðila okkar án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til að mæta þörfum sínum.
- Við fylgjum reglum
Ákvarðanir okkar og verk eru í samræmi við lög og reglur. Óvissu í þessu samhengi ber að eyða svo sem frekast er unnt. Við fylgjum eigin verklagsreglum og færum þær til betri vegar ef þess gerist þörf.
- Við berum ábyrgð á verkum okkar og umhverfi
Við þekkjum hlutverk okkar og öxlum ábyrgð á verkefnum okkar og ákvörðunum og horfum til áhrifa þeirra á hagsmunaaðila okkar og umhverfið. Við túlkum hlutverk, ábyrgðarsvið og áhrif okkar vítt og tryggjum að engin verkefni falli milli skips og bryggju.
- Við getum rökstutt ákvarðanir okkar
Við ástundum gagnrýna hugsun og tökum ákvarðanir á faglegum forsendum sem við getum rökstutt gagnvart hagsmunaaðilum, þ.e. viðskiptavinum, fjárfestum, starfsfólki og samfélaginu.
Arion banki er aðili að Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja og var með fyrstu aðilum til að undirrita meginreglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi (UN PRB). Með því skuldbindur bankinn sig til að vinna að og hvetja til sjálfbærrar þróunar í allri sinni virðiskeðju.
Siðareglur birgja
Vefkökustefna Arion
Arion banki hf. (hér eftir vísað til „Arion“ eða „bankans“) notar vefkökur í þeim tilgangi að stuðla að virkni, greina notkun og bæta upplifun notenda í netbanka og á vefsíðum (hér eftir vísað til „vefsvæði“) sem eru í eigu eða rekstri hjá bankanum.
1. Hvað eru vefkökur?
Vefkaka er lítil textaskrá sem er vistuð á tölvu eða öðrum tækjum þegar vefsvæði er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskrá er geymd í vefvafra notenda og vefurinn þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þannig er hægt að senda ákveðnar upplýsingar í vafra notenda sem getur auðveldað aðgang að ýmsum aðgerðum.
Vefkökur eru annað hvort fyrstu aðila vefkökur, sem senda eingöngu upplýsingar til þjónustuveitanda (í þessu tilviki Arion), eða þriðju aðila, sem eru tilkomnar vegna þjónustu sem þjónustuveitandi notar og sendir upplýsingar til vefsvæðis í eigu þriðja aðila. Viðkomandi aðilar kunna einnig að tengja þær upplýsingar við aðrar sem notendur hafa látið þeim í té, eða upplýsingar sem þeir hafa safnað með notkun notenda á þeirra þjónustu.
2. Notkun Arion banka hf. á vefkökum
Þegar notandi heimsækir vefsvæði í fyrsta skipti birtist borði með stillingum fótspora. Þar hefur notandi kost á að velja eða hafna notkun á valfrjálsum vefkökum; hagnýtar kökur og markaðssetningar kökur.
Þær vefkökur sem bankinn notar og í hvaða tilgangi eru eftirfarandi:
Virkni kökur (12+) | |||
---|---|---|---|
Nafn | Veita | Markmið | Fellur úr gildi |
ASP.NET_SessionId | .arionbanki.is | Heldur utan um aðgang notenda fyrir síðubeiðnir. | Session |
TS**** | .arionbanki.is, .www.arionbanki.is | Notað til að viðhalda öruggum samskiptum milli innri þjóna sem vefsvæðið notar | Session |
arAgreed[nafn_á_samþykkiköku] | .arionbanki.is | Heldur utan um stöðu samþykktar um kökuvirkni á vefsvæðinu | 1 ár |
__RequestVerificationToken_* | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um innskráningarsetu notenda í netbanka | Session |
__LOGINCOOKIE__ | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um innskráningarsetu notenda í netbanka | Session |
.N5SSESSION | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um innskráningarsetu notenda í netbanka | Session |
.SOSAUTH | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um innskráningarsetu notenda í netbanka | Session |
.FedAuth | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um innskráningarsetu notenda í netbanka | Session |
NetbankiLanguage | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um valið tungumál notanda | Session |
SosCookie | netbanki.arionbanki.is | Heldur utan um hvaðan innskráning á sér stað (t.d. netbanka, appi eða bókhaldskerfi). Heldur einnig utan um tegund innskráningar (t.d. hvort notandi notast við rafræn skilríki) | Session |
ab_12 | www.arionbanki.is | Bakendavirkni | Session |
Hagnýtar kökur eru notaðar til að bæta þjónustu bankans með því að veita innsýn í notkun vefsvæða, muna stillingar notenda, forútfylla form o.fl. Gögnin eru notuð til að vinna tölfræðilegar upplýsingar varðandi umferð um vefsvæði og hámarka notendaupplifun með því að aðlaga vefsvæði að þörfum hvers og eins. Notkun á hagnýtum kökum byggir á samþykki notenda.
Hagnýtar kökur (6) | |||
---|---|---|---|
Nafn | Veita | Markmið | Fellur úr gildi |
_ga | .arionbanki.is | Skráir einkvæmt auðkenni sem er notað til að safna tölulegum upplýsingum um notkun neytenda á vefsíðunni. | 2 ár |
__utma | .arionbanki.is | Safnar gögnum um fjölda heimsókna notanda á vefsíðuna sem og dagsetningu fyrstu og síðustu heimsóknar. Notað af Google Analytics. | 2 ár |
__utmb | .arionbanki.is | Skráir tímasetningu fyrstu heimsóknar notanda á vefsvæði. Notað af Google Analytics til að reikna út lengd heimsóknar á vefsvæði | 30 mínútur |
__utmc | .arionbanki.is | Skráir tímasetningu brottfarar notanda af vefsíðunni. Notað af Google Analytics til að reikna út lengd heimsóknar á vefsíðu. | Session |
__utmt | .arionbanki.is | Notað til að draga úr hraða beiðna sem sendar eru á þjóninn. | 10 mínútur |
__utmz | .arionbanki.is | Safnar gögnum um það hvaðan notandi kom, hvaða leitarvél var notuð, hvaða hlekki var smellt á og hvaða leitarorð notuð. Notað af Google Analytics. | 6 mánuðir |
Markaðssetningar kökur (þriðju aðila vefkökur, m.a. hjá Facebook) eru notaðar í markaðslegum tilgangi til að bæta upplifun notenda. Það er gert með því að nota upplýsingar um aðgerðir notenda á netinu, hvort sem á vefsvæðum bankans eða annarra þjónustuveitanda. Þannig er hægt að aðlaga vefsvæði enn betur að þörfum notenda og birta þeim sérsniðin þjónustuskilaboð. Notkun þessara kaka gera bankanum einnig kleift að fylgjast með árangri auglýsinga og annarrar markaðsstarfsemi á netinu. Notkun á markaðssetningar kökum byggir á samþykki notenda.
Markaðssetningar kökur (3+) | |||
---|---|---|---|
Nafn | Veita | Markmið | Fellur úr gildi |
_fbp | .facebook.com | Notað fyrir tenginu við áhugasviðs tengdar auglýsingar | 3 klukkustundir |
__ga_**** | .arionbanki.is | Notað fyrir virkni Google Analytics auglýsingar og vefsíðunotkun | 1 mánúður |
_gcl_au | .arionbanki.is | Til að halda utan um mælikvarða fyrir auglýsingasmelli | 6 mánúður |
3. Stillingar á notkun vefkaka
Notendur geta alltaf breytt stillingu fótspora á vefsvæði hér fyrir neðan. Slíkar breytingar geta þó dregið úr notagildi vefsvæðis.
4. Meðferð á persónuupplýsingum
Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við gildandi ákvæði laga og reglna um persónuververnd. Nánar um hvernig Arion vinnur persónuupplýsingar er að finna í persónuverndaryfirlýsingu bankans, á arionbanki.is/personuvernd.