Fyrirvarar

Almennur fyrirvari

Arion banki ber hvorki ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef bankans né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma; meðal annars, en ekki eingöngu, ber bankinn ekki ábyrgð á tjóni vegna tapaðra fjárfestingatækifæra notenda.

Arion banki byggir upplýsingarnar á vefnum á heimildum sem bankinn telur áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Arion banka er ekki skylt að uppfæra það sem fram kemur á vefnum og kunna upplýsingar og skoðanir sem þar koma fram að breytast án fyrirvara.

Upplýsingar sem birtar eru á vef Arion banka fela á engan hátt í sér ráðleggingar um kaup eða sölu tiltekinna fjármálagerninga og bera notendur vefsins einir ábyrgð á þeim fjárfestingaákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga sem birtar eru á vefnum. Arion banki kann þó að veita ráðgjöf til viðskiptavina bankans í gegnum vefinn um kaup eða sölu fjármálagerninga og/eða um skattamál enda kemur þá skýrt fram á vefnum að um ráðgjöf sé að ræða. Upplýsingar og ráðgjöf Arion banka á vefnum miðast ekki við ákveðin fjárfestingarmarkmið, ákveðna fjárhagsstöðu eða sérhagsmuni tiltekinna notenda og eru ávallt almenns eðlis þar sem ekki er hægt að taka tillit til aðstæðna hvers og eins. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af slíkri upplýsinga- eða ráðgjöf bankans.

Viðskipti með fjármálagerninga eru mjög áhættusöm í eðli sínu. Verðbreytingar í fortíð gefa ekki endilega vísbendingu um framtíðarbreytingar. Notendur á vef Arion banka eru hvattir til að afla sér almennra upplýsinga um eðli verðbréfaviðskipta, fjárfestingamálefni, skattamál o.fl. sem tengist verðbréfaviðskiptum hjá ráðgjöfum bankans.

Þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum um þá fjármálagerninga sem fjallað er um á vef bankans er bent á að leita til ráðgjafa Arion banka. Í einstökum tilvikum kann að vera ómögulegt að eiga viðskipti með fjármálagerninga sem upplýsingar eru um á vef Arion banka og þá geta viðskipti verið takmörkuð við tiltekna hópa fjárfesta.

Á yfirlitum yfir fjármálagerninga viðskiptavina bankans tekur markaðsverðmæti ekki tillit til þóknana eða annars kostnaðar sem til fellur ef þeir verða seldir. Á yfirlitum er „markaðsgengi“ nýjasta gengi og „markaðsvirði“ verðmæti fjármálagernina miðað við það gengi. Á hreyfingaryfirlitum er „gengi“ viðskiptagengi hreyfinga og „verð“ viðskiptaverð út frá því. Markaðsgengi fjármálagerninga sem skráðir eru í Kauphöll Íslands hf. er almennt síðasta viðskiptagengi þeirra á þinginu. Sé langt um liðið frá síðustu viðskiptum er einnig litið til hagstæðustu kauptilboða þegar markaðsverðið er metið. Arion banki áskilur sér rétt til leiðréttinga á yfirlitum.

Arion banki á höfundarréttinn á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef bankans, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki Arion banka þarf til að endurbirta upplýsingar sem fram koma á vef bankans, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Viðskiptavinum Arion banka er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota. 

Fyrirvari vegna tölvupósts

Efni þessa tölvupósts og viðhengja kann að vera trúnaðarmál. Ef sá sem tekur við þessum tölvupósti er ekki réttur viðtakandi er hann vinsamlegast beðinn um að tilkynna sendanda og eyða tölvupóstinum og viðhengjum án þess að afrita, dreifa eða notfæra sér þau á nokkurn hátt. Sé efni þessa tölvupósts og viðhengja ótengt starfsemi Arion banka hf. eða tengdra félaga er sendandi einn ábyrgur. Óheimil notkun getur varðað bótaábyrgð og refsingu.

Arion banki hf. og tengd félög hafa gripið til allra skynsamlegra varúðarráðstafana til að tryggja að þessi tölvupóstur og viðhengi innihaldi ekki tölvuvírusa og aðrar villur. Þrátt fyrir það tekur bankinn ekki ábyrgð á tjóni sem verður vegna þessa tölvupósts eða viðhengja þar sem upplýsingar eru móttækilegar fyrir breytingum og geta innihaldið tölvuvírusa. Því er viðtakanda ráðlagt að leita eftir tölvuvírusum áður en viðhengi eru opnuð.

Fyrirvari vegna efnahagsgreininga

  • Efnahagsgreiningar eru útbúnar af Arion banka hf. (hér eftir „bankinn“) eingöngu til almennra upplýsinga. Efnahagsgreining felur hvorki í sér fjárfestingargreiningu né fjárfestingarráðgjöf í skilningi laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og tengdra reglugerða og tekur ekki tillit til flokkunar, persónulegra fjárfestingamarkmiða eða aðstæðna móttakanda hennar, þ.á.m. hvort tiltekin ráðstöfun hæfi honum og er ekki ætlað að mæla með eða leggja til nokkurs konar fjárfestingaráætlun eða ákvarðanatöku af hálfu móttakanda. Efnahagsgreining og efni hennar er sett fram óháð hugsanlegum samningum móttakanda og bankans.
     
  • Ekkert í efnahagsgreiningu skal túlkað á þann veg að bankinn hafi tekið að sér að veita móttakendum hennar fjárfestingaráðgjöf, persónulega ráðleggingu eða annars konar ráðgjöf en til slíkrar ráðgjafar verður aðeins efnt á grundvelli skriflegs samnings milli aðila. Aukinheldur skal móttakandi eða þriðji aðili ekki veita fjárfestingarráðgjöf sem byggir á efnahagsgreiningu bankans.
     
  • Þær skoðanir sem fram koma í efnahagsgreiningu endurspegla aðeins núverandi skoðanir höfunda hennar og geta tekið breytingum án fyrirvara. Upplýsingar sem fram koma í efnahagsgreiningu fela ekki í sér loforð eða spá um framtíðina. Bankanum ber ekki skylda til að veita móttakanda aðgang að frekari upplýsingum en þeim sem fram koma í efnahagsgreiningu eða til að uppfæra þær upplýsingar sem þar koma fram. Bankanum ber ekki skylda til að leiðrétta upplýsingar, reynist þær rangar.
     
  • Upplýsingar sem fram koma í efnahagsgreiningu eru byggðar á fyrirliggjandi opinberum upplýsingum, sem hafa ekki verið staðreyndar af bankanum, og áætlunum um væntanlega þróun ytri skilyrða og hafa verið teknar saman í góðri trú frá heimildum sem taldar eru áreiðanlegar. Eru upplýsingarnar háðar ýmsum óvissuþáttum og geta þær breyst án fyrirvara. Bankinn og starfsmenn hans taka ekki ábyrgð á gæðum, nákvæmni eða áreiðanleika efnahagsgreininga eða þeirra upplýsinga sem í henni eru veittar.
     
  • Bankinn, þar með talið hluthafar, stjórnendur, starfsmenn og ráðgjafar á vegum bankans, tekur enga ábyrgð á þeim upplýsingum, forsendum og niðurstöðum sem fram koma í efnahagsgreiningu eða upplýsingum sem eru veittar í tengslum við hana. Mun bankinn ekki gefa yfirlýsingar um að upplýsingarnar, forsendurnar og niðurstöðurnar séu nákvæmar, áreiðanlegar eða fullnægjandi og skal bankinn ekki bera skaðabótaábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að þær reynist ónákvæmar, óáreiðanlegar eða ófullnægjandi.
     
  • Þær upplýsingar sem fram koma í efnahagsgreiningu eru birtar á þeirri forsendu að þær teljist vera ásættanlegur minniháttar ófjárhagslegur ávinningur í skilningi íslenskra laga og reglna. Það er á ábyrgð móttakanda efnahagsgreiningu að kynna sér þær reglur sem gilda um móttöku hans á efnahagsgreiningu og ganga úr skugga um að honum sé heimilt að taka á móti henni.
     
  • Þriðju aðilar, þ.e. aðrir en bankinn og upphaflegir viðtakendur sem fá efnahagsgreiningu í hendur frá bankanum, sem kunna, af hvaða orsökum sem er að fá efnahagsgreiningu bankans í hendur, skulu ekki geta lagt neinn trúnað á efni hennar og skulu engan rétt geta byggt á hendur bankanum á grundvelli hennar.
     
  • Ábyrgðarfyrirvari þessi er gerður á íslensku og þýddur yfir á ensku. Sé einhvers misræmis að gæta á fyrirvörunum, skal íslenski textinn gilda.
     
  • Með móttöku efnahagsgreiningar fellst móttakandi á framangreindan ábyrgðarfyrirvara.

Fyrirvari vegna netspjalls og spjallmennis

Arion ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingum frá spjallmenni bankans. Allar aðgerðir í netspjallinu eru á ábyrgð notanda þess. Spjallmennið er stafrænn ráðgjafi en ekki starfsmaður Arion banka hf.

Vinsamlega sendið ekki kortaupplýsingar eða leyninúmer í gegnum spjallið. Öll samskipti eru vistuð í gagnagrunni bankans.

Þú verður beðin/-nn um að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum ef óskað er eftir að framkvæma fjárhagslegar aðgerðir eða fá persónugreinandi upplýsingar. Gætið þess að fara aldrei frá netspjallinu á meðan það er opið. Notandi ber ábyrgð á að loka síðunni/vafranum þegar netspjallinu er lokið.

Notandi samþykkir að niðurstöðu auðkenningar sé miðlað til þriðja aðila.

Notendur eru hvattir til þess að kynna sér persónuverndaryfirlýsingu bankans.