Árangur viðskiptavina
Markmið fólks eru ólík en okkar hlutverk er að vinna með viðskiptavinum að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Hvort sem það er ungt fólk á leið í nám erlendis eldra fólk að byggja upp eignasöfn og tryggja fjárhagslegt öryggi á efri árum eða stórfyrirtæki sem fjárfestir í umhverfisvænni framleiðslu eða sprotafyrirtæki í leit að fjármögnun, þá erum við alltaf að vinna að árangri okkar viðskiptavina.
Árangur samfélagsins
Verkefnin sem við fjármögnum hafa mikil áhrif á samfélag okkar og umhverfi. Við höfum trú á kraftmiklu atvinnulífi og erum leiðandi í grænni fjármögnun og ætlum okkur að vera það áfram.
Árangur eigenda
Þúsundir Íslendinga eru hluthafar í Arion, bæði beint en líka óbeint í gegnum lífeyrissjóði. Við erum meðvituð um okkar ábyrgð og höfum metnað til þess að skila eigendum okkar auknum verðmætum.
Árangur starfsfólks
Starfsfólk bankans er fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að hafa metnað fyrir störfum sínum. Við leggjum okkur fram við að byggja upp vinnustað þar sem kunnátta, þekking og færni fær að njóta sín.
Þegar viðskiptavinum okkar gengur vel, þá gengur okkur vel.
Hvað er árangur fyrir þér?
Við spurðum nokkra einstaklinga hvað árangur væri fyrir þeim.
Svörin voru ólík enda markmið fólks fjölbreytt:
Stefnan okkar
Gildin okkar
Finnum lausnir
- Við erum jákvæð og lausnamiðuð í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur
- Við trúum því að skapandi hugsunarháttur og lifandi frumkvæði leiði til snjallra lausna
- Við erum meira en banki – við erum úrræðagóður samstarfsaðili sem hjálpar fólki og samfélögum að ná árangri
Komum hreint fram
- Við ástundum góða viðskiptahætti með sjálfbærni að leiðarljósi
- Við erum hreinskiptin og bendum á það sem betur má fara
- Við gætum trúnaðar í hvívetna og komum fram af virðingu
Vinnum saman
- Við berum sjálf ábyrgð á að skapa starfsumhverfi sem er auðgandi, skemmtilegt og hvetjandi
- Við temjum okkur nána samvinnu, bæði milli sviða og við samstarfsaðila
- Við vinnum með viðskiptavinum okkar svo þeir nái sínum markmiðum