Skýrslur Arion banka fyrir árið 2023

Skýrslur Arion banka fyrir árið 2023

Skýrslur Arion banka fyrir árið 2023 - mynd

Arion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2023. Skýrslurnar eru á rafrænu formi og aðgengilegar á vef bankans. Ársreikningur bankans fyrir árið 2023 var birtur 7. febrúar sl.

Auk umfjöllunar um þjónustu bankans, helstu verkefni og fjárhagsniðurstöður ársins 2023 inniheldur Árs- og sjálfbærniskýrsla Arion banka m.a. umfjöllun um mannauðsmál, umhverfis- og loftlagsmál, græn fjármál og sjálfbærniuppgjör í samræmi við GRI Standards og UFS leiðbeiningar Nasdaq. Samhliða útgáfu ársskýrslunnar gefur bankinn út sérstaka skýrslu um fjármagnaðan útblástur og markmið til ársins 2030. Þá gerir bankinn grein fyrir framvindu innleiðingar á meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking (UN PRB). Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á upplýsingagjöf í tengslum við sjálfbærni.

Áhættuskýrsla bankans fjallar um helstu áhættuþætti Arion banka á ítarlegan hátt og er þar að finna greinargóðar upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans. Auk þess er að finna upplýsingar um stjórnskipulag bankans með tilliti til áhættu sem og starfskjarastefnu. Skýrslan er gefin út ásamt upplýsingasniðmátum Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar (EBA) og ætti að lesast samhliða þeim.