Sjálfbær framtíð

Við viljum öll leggja okkar af mörkum fyrir framtíðina og allt skiptir máli.

Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru ein stærsta áskorun sem við stöndum frammi fyrir og það hvernig við stýrum fjármagni getur haft afgerandi áhrif á framgang mála.

Grænn vöxtur

Grænn vöxtur er sparnaðarreikningur sem er hugsaður fyrir einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar. Reikningurinn er óverðtryggður, óbundinn og því laus til úttektar hvenær sem er.

Eitt meginhlutverk banka er að miðla fjármagni frá þeim sem eiga sparnað til þeirra sem þurfa lán og gegna innlán þar mikilvægu hlutverki. Fjármunum sem safnast inn á Grænan vöxt er ráðstafað til vistvænna verkefna í samræmi við Græna fjármálaumgjörð Arion banka.

Áhrifagreining fyrir grænan vöxt

Það veitir innblástur og hvatningu til að gera stöðugt betur að sjá hversu jákvæð áhrif það hefur á umhverfið að lána til grænna verkefna.

Með grænum innlánum Arion banka, Grænum vexti, leggja viðskiptavinir svo sannarlega sitt af mörkum til framtíðar.

Saman látum við góða hluti gerast.

Stofna reikning fyrir Grænan vöxt

Áhrifa- og úthlutunarskýrsla Arion banka fyrir árið 2021

Græn fjármálaumgjörð
Arion banka

Arion banki hefur gefið út heildstæða græna fjármálaumgjörð sem tekur til fjármögnunar bankans og lánveitinga. Í umgjörðinni er með skýrum og gegnsæjum hætti gerð grein fyrir þeim skilyrðum sem lánveitingar bankans þurf a að uppfylla til að teljast umhverfisvænar. Jafnframt er kveðið á um stjórnskipulag bankans í kringum grænar lánveitingar.

Græn fjármálaumgjörð Arion banka hefur fengið álit norska matsfyrirtækisins Cicero sem gefur umgjörðinni einkunnina ,,Medium Green“ og stjórnarháttum í tengslum við hana einkunnina ,,Good“. 

Græn fjármálaumgjörð Arion banka

Skýrsla Mannvits um græn íbúðalán

Álit Cicero

Með því að leggja sparnaðinn inn á Grænan vöxt styðja viðskiptavinir og Arion banki saman við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun númer sex, sjö, níu, ellefu, tólf, þrettán, fjórtán og fimmtán.