Sjálfbær framtíð

Við viljum öll leggja okkar af mörkum fyrir framtíðina og allt skiptir máli.

Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru ein stærsta áskorun sem við stöndum frammi fyrir og það hvernig við stýrum fjármagni getur haft afgerandi áhrif á framgang mála.

Sjálfbæra vegferðin

Við hjá Arion banka viljum stöðugt gera betur og viljum að verkefnin sem við styðjum viðskiptavini okkar í hafi jákvæð áhrif á bæði umhverfi og samfélag. Við höfum sett okkur metnaðarfulla umhverfis- og loftslagsstefnu og viljum leggja okkar af mörkum til að Ísland geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu og náð markmiðum ríkisstjórnarinnar um kolefnishlutleysi árið 2040.

Nánari upplýsingar í árs- og sjálfbærniskýrslu Arion banka 2023

Heildstæð fjármálaumgjörð
fyrir sjálfbæra framtíð

Arion banki hefur gefið út sjálfbæra fjármálaumgjörð. Hún tekur til fjármögnunar bankans, innlána og lánveitinga sem flokkast sem umhverfis- og/eða félagslega sjálfbær. Nýja umgjörðin leysir af hólmi græna fjármálaumgjörð bankans sem kom út árið 2021 og hefur nýst vel, m.a. við veitingu grænna lána og útgáfu grænna skuldabréfa. Meðal helstu nýjunga í fjármálaumgjörðinni eru félagslegir flokkar en undir þá falla verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Þá fær hringrásarhagkerfið aukna vigt og eins er skerpt á flokkun grænna verkefna frá fyrri umgjörð.

Sjálfbær fjármálaumgjörð Arion banka
Skýrsla COWI um græn íbúðalán
Álit ISS Corporate
Áhrifa- og úthlutunarskýrsla

Umhverfisvæn fjármálaþjónusta
í þágu sjálfbærrar framtíðar

Við gerum okkur grein fyrir því að mestu áhrifin sem bankar hafa í tengslum við umhverfis- og loftslagsmál koma fram í gegnum lánveitingar og fjárfestingar og þá ábyrgð tökum við alvarlega. Við erum stolt af vegferðinni okkar og þeirri áherslu á umhverfis- og loftslagsmál sem kemur skýrt fram í þjónustu- og vöruframboði bankans.

Umgjörðin hefur hlotið álit frá óháðum aðila, ISS Corporate, sem mat gæði hennar m.a. út frá framlagi til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og hæfi verkefna út frá tæknilegum matsviðmiðum flokkunarkerfis Evrópusambandsins á sjálfbærri starfsemi. Deutsche Bank veitti Arion banka ráðgjöf við mótun sjálfbæru fjármálaumgjarðarinnar. Samhliða útgáfu sjálfbæru fjármálaumgjarðarinnar er birt skýrsla með uppfærðri aðferðafræði við útreikninga á grænu íbúðarhúsnæði sem verkfræðistofan COWI vann fyrir bankann.

Bankinn hefur lagt áherslu á sjálfbært vöruúrval og býður meðal annars upp á græn íbúðarlán, bílalán, innlán og fyrirtækjalán. Nýja umgjörðin mun nýtast við frekari vöruþróun á sviði sjálfbærrar bankaþjónustu og við útgáfu sjálfbærra skuldabréfa.

Fréttir af sjálfbærni