Eru eftirlaunaárin innan seilingar?

Að mörgu er að hyggja þegar kemur að útgreiðslu lífeyrissparnaðar og því leggjum við sérstaka áherslu á faglega og persónulega útgreiðsluráðgjöf ásamt því að bjóða reglulega upp á opna fræðslufundi um útgreiðslur.

Útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta fyrst hafist við 60 ára aldur, en þó eru útgreiðslureglur mismunandi eftir tegundum lífeyrissparnaðar. Meðal umfjöllunarefnis verða útgreiðslureglur, skatta­leg meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna við greiðslur frá Tryggingastofnun. Við viljum vekja athygli á því að nú er hægt að sækja um útgreiðslu eftirlauna og séreignar í Arion appinu.

Fræðslufundurinn verður haldinn miðvikudaginn 26. mars kl. 17:15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Fundinum verður einnig streymt á Facebook síðum Arion banka og Frjálsa lífeyrissjóðsins. 

Fundurinn stendur yfir í rúma klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.  

Allir velkomnir.

Skráning