Varnir gegn kortasvikum

Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.

Góð ráð þegar verslað er á netinu

Netverslun er þægileg leið til að ganga frá kaupum. Yfirleitt er einfalt að versla á netinu en gott er að hafa eftirfarandi atriði í huga til að tryggja að kaup fari vel fram.

Of gott til að vera satt?

Rambaðirðu á gott tilboð? Mögulega of gott til að vera satt? Ef tilboð virðist grunsamlegt, eða eitthvað í umgjörð verslunar virkar ótrúverðugt, er best að staldra við og kynna sér hlutina betur.

Netkort fyrir netkaup

Netkort er góður valkostur fyrir þá sem vilja vera með aukakort fyrir kaup á netinu. Kortið kostar ekkert, er umhverfisvænt og aðgengilegt í Arion appinu. 

Nánar um netkort

Veistu við hvern þú ert að versla?

Áður en þú gefur upp kortaupplýsingar er gott að kynna sér vöruna og seljandann vel. Ef seljandi er óþekktur er got að leita að nafni verslunarinnar á netinu, eða spyrjast fyrir um reynslu annarra.

Það er öruggast að versla við aðila sem þú þekkir og veist að aðrir hafa góða reynslu af.

Stemmir þetta?

Þegar þú verslar á netinu þarftu gjarnan að staðfesta kaupin með rafrænum skilríkjum eða í Arion appinu. Þessi staðfesting er ígildi þess að samþykkja færslu með PIN-númeri. 

Það er mikilvægt að athuga hvort upphæð, mynt og nafn seljanda á staðfestingarskjá stemmi, því ef þú staðfestir kaupin er færslan óafturkræf. 

Tilkynning frá söluaðila

Eru skilaboðin sannarlega frá aðilanum sem þú varst að versla við?  Er vefslóðin rétt?  Er netfangið eðlilegt? Er um sama gjaldmiðil að ræða? Stemmir upphæðin við þá upphæð sem birtist á staðfestingarskjá í appinu? 
Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við söluaðila. 

Færðu fríu prufuna frítt? 

Það getur verið freistandi að fá fría prufuáskrift. Áður en þú gefur upp kortanúmer skaltu þó skoða smáa letrið vel. Skilmálar segja gjarnan að kortið verði skuldfært ef þú segir ekki upp áskriftinni innan ákveðins tímaramma. 

Borga í erlendri mynt eða íslenskum krónum?  

Erlendir seljendur bjóða viðskiptavinum oft að ganga frá kaupum í íslenskum krónum. Gengið sem þeir bjóða er þó gjarnan óhagstæðara en gengi Arion banka. Það er því gott að kíkja á kjörin sem bjóðast. 

Höfum varann á

Óeðlilegar færslur á kortinu þínu?

Það er mikilvægt að fylgjast með færslunum á kortunu þínu.

Ef þú kemur auga á óeðlilegar færslur þá ráðleggjum við þér að frysta kortið á meðan þú athugar hvort þær eigi rétt á sér.

Ef þú telur að um kortasvik sé að ræða skaltu hafa samband við þjónustuver Arion banka í síma 444 7000 og láta loka kortinu. Neyðarvakt utan afgreiðslutíma er í gegnum sama númer.

Verum alltaf á varðbergi í netviðskipum

Gefðu þér góðan tíma til að yfirfara allar upplýsingar áður þú gefur upp viðkvæm gögn, eins og kortaupplýsingar.

Mundu líka að gefa aldrei upp notendanafn eða lykilorð í netbanka eða app.

Svik í gegnum samfélagsmiðla

Svikari tekur yfir samfélagsmiðla hjá einstaklingi og hefur samband við aðila á vinalista, gjarnan undir því yfirskini að hafa skráð viðkomandi í leik. Einstaklingur sem fær slík skilaboð heldur mögulega að hann sé að ræða við vin, og gæti freistast til að gefa upp kortaupplýsingar og staðfesta kortafærslur rafrænt í von um vinning.

Rétt er að ítreka eftirfarandi:

  • Aldrei gefa upp kortaupplýsingar á samfélagsmiðlum, með símtali, tölvupósti eða í gegnum SMS
  • Aldrei gefa öðrum upp notendanafn og lykilorð fyrir netbanka þinn
  • Aldrei gefa öðrum upp leyninúmer á reikningi
  • Aldrei gefa öðrum upp SMS kóða á samfélagsmiðlum, í tölvupósti, SMS eða með símtali
  • Aldrei samþykkja innskráningu með rafrænum skilríkjum, nema þú þekkir uppruna beiðninnar
  • Aldrei láta undan pressu frá þriðja aðila við að framkvæma eða staðfesta greiðslufyrirmæli
  • Ef þú færð slíka beiðni mælum við með að þú hafir samband við viðkomandi einstakling, fyrirtæki eða stofnun til að athuga hvort hún eigi rétt á sér

Svikapóstar og SMS

Algeng aðferð við kortasvik er að senda tölvupóst eða SMS um að þín bíði sending, eða að þú þurfir að uppfæra upplýsingar á tiltekinni vefsíðu. Í skilaboðunum er hlekkur sem vísar á falska vefsíðu, sem t.d. líkist Netflix, DHL eða Póstinum, eða greiðslusíðu fjármálafyrirtækis.

 

Fölsk skilaboð móttekin

Einstaklingur fær tölvupóst, eða SMS, sem virðist vera frá raunverulegu fyrirtæki og er beðinn að smella á hlekk.

Viðkomandi smellir á hlekkinn sem leiðir á falska vefsíðu, sem við fyrstu sýn virðist traustsins verð.

Upplýsingum stolið

Hlekkurinn vísar á falska síðu þar sem beðið er um viðkvæmar upplýsingar, svo sem kortanúmer, CVV-númer og gildistíma, eða upplýsingar til að komast inn í netbanka eða app viðkomandi.

 

 

Upplýsingar notaðar

Hér eru svikahrapparnir komnir með upplýsingar til að svíkja fé út af kortinu, eða búnir að fá aðgang að appi/netbanka.

Gefðu þér góðan tíma til að yfirfara allar upplýsingar áður þú gefur upp viðkvæm gögn, eins og kortaupplýsingar. Mundu að gefa aldrei upp notendanafn eða lykilorð í netbanka eða app.

Lentir þú í kortasvikum?

Það er mjög einfalt að fylgjast með kortafærslum í Arion appinu. Ef þú kemur auga á óeðlilegar færslur ráðleggjum við þér að frysta kortið í appinu eða netbankanum. Ef um kortasvik er að ræða skaltu hafa samband við þjónustuver Arion banka í síma 444 7000 og láta loka kortinu. Neyðarvakt utan afgreiðslutíma er í gegnum sama númer.