Stofnaðu og fylgstu með reikningum barnanna í Arion appinu

 

Með fjölskyldu-sýninni í appinu geta foreldrar fylgst með reikningum barna sinna, öllum hreyfingum á debetkorti og annarri slíkri virkni. Þar geta foreldrar enn fremur stofnað bæði sparnaðarreikninga (t.d. framtíðarreikning) og debetkort fyrir börn sín með fljótlegum og einföldum hætti.

Foreldrar hafa fulla sýn á reikninga barna sinna þangað til börnin ná átján ára aldri og verða fjárráða. Þá hverfur sýn foreldranna.

Til þess að virkja millifærsluaðgang á reikninga barna þarf að hafa samband við þjónustuver. Allir foreldrar/forsjáraðilar þurfa að skrifa undir úttektarumboð.

Reglulegur sparnaður
á Framtíðarreikningi

Framtíðarreikningur er góður verðtryggður reikningur sem ber hæstu innlánsvexti hverju sinni.

Reikningurinn er bundinn til 18 ára og tilvalinn fyrir reglulegan sparnað.

Ef þú vilt stofna Framtíðarreikning fyrir barn er best að kíkja við í útibú okkar eða að hafa samband í síma 444 7000.

Skoða Framtíðarreikning

Debetkort fyrir 9 ára og eldri

Seðlar eru að verða sjaldséðir og því getur verið hentugt að millifæra vasapeninginn beint á barnið. Það er lítið mál hvort sem er í appinu, eða netbankanum. Þar að auki greiðir fólk undir 23 ára hvorki árgjöld né færslugjöld.

Sækja um kort

Reglulegur sparnaður
með áskrift í sjóðum

Þú getur bæði stofnað áskrift í sjóðum fyrir barnið þitt í Arion appinu eða netbankanum.

Ferlið er algerlega rafrænt, þú hefur einstaka yfirsýn yfir stöðuna í appinu og getur sótt hreyfingaryfirlit þegar þér hentar.

Áður en þú kaupir áskrift í sjóðum þarftu þó að stofna til verðbréfaviðskipta fyrir barnið.

Skrá barn í verðbréfaviðskipti

Spurt og svarað

Tengt efni

Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts.

Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu bankans undir yfirliti sjóða þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Jafnframt er hægt að nálgast framangreind gögn í útibúum bankans. Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.

Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði og rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Stefnir er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.

Upplýsingar þær sem hér koma fram byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Áskilinn er réttur til leiðréttinga. Arion banki eða starfsmenn bankans bera enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.