Kort fyrir þinn rekstur
Debetkort fyrirtækja er einföld og örugg leið til að halda utan um dagleg útgjöld.

Debetkort fyrirtækja er einföld og örugg leið til að halda utan um dagleg útgjöld.

Með Visa Debit er bæði þægilegt og einfalt að greiða fyrir vörur og þjónustu, hvort sem það er snertilaust í verslun eða í netviðskiptum. Kortið er einnig í boði sem síhringikort fyrir aukin þægindi í daglegri notkun.
Auk þess veitir það aðgang að reikningi í gegnum hraðbanka, þar sem jafnframt er hægt að leggja inn seðla, sem gerir fjármálastjórnun enn einfaldari og aðgengilegri.

Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.
Kortasvik eru sem betur fer fátíð, enda reynum við eftir bestu getu að tryggja öryggi korthafa með áhættustýringu og svikavöktun.
Ef það kemur færsla á kortið þitt sem þú telur af einhverjum ástæðum ekki eiga rétt á sér getur þú mögulega átt rétt á endurkröfu samkvæmt endurkröfureglum kortasamtaka.