Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf.

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf.

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. verður haldinn miðvikudaginn 25. maí nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

a) Skýrsla stjórnar
b) Kynning á ársreikningi
c) Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
d) Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
e) Kosning eins varamanns
f) Kjör endurskoðanda
g) Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins
h) Laun stjórnarmanna
i) Önnur mál

Heildareignir sjóðsins í árslok 2015 eru 17,6% umfram heildarskuldbindingar og hefur tryggingafræðileg staða sjóðsins batnað um 6,8% frá árslokum 2014. Í ljósi þessa leggur stjórn fram tillögu um breytingar á samþykktum sjóðsins, sem kveður á um 10% réttindaaukningu til sjóðfélaga. Þessi aukning kæmi til viðbótar við 2% réttindaaukningu sem samþykkt var á ársfundi 2014 og 14% réttindaaukningu sem samþykkt var á ársfundi sjóðsins 2013.

Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.

Hér fyrir neðan má nálgast fundargögn: Ársreikning sjóðsins 2015, tryggingafræðilega úttekt 2015 og tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum.

Ársreikningur 2015
Tryggingafræðileg úttekt 2015
Samþykktir LSBÍ með auðkenndum breytingum

Fréttasafn

01. nóvember 2022

Málefni ÍL-sjóðs

LSBÍ er einn af eigendum að skuldabréfum með ríkisábyrgð sem Íbúðalánasjóður hóf útgáfu á árið 2004...

LESA NÁNAR

26. september 2017

Sjóðfélagayfirlit

Yfirlit sjóðfélaga LSBÍ eru komin í hús. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða...

LESA NÁNAR

29. apríl 2014

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 28. maí...

LESA NÁNAR

29. apríl 2013

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 29. maí...

LESA NÁNAR

16. maí 2012

Ársfundur LSBÍ

Ársfundur LSBÍ verður haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, miðvikudaginn 30. maí...

LESA NÁNAR