Frysta kort í appinu
Það er einfalt og fljótlegt að frysta kreditkort og debetkort í appinu sem og virkja þau aftur.
Með því að frysta kortið lokar þú fyrir notkun kortsins í verslunum, hraðbönkum og á netinu. Boðgreiðslur sem og snjallgreiðslur munu þó virka áfram.
Hægt er að virkja kortið aftur í appinu.
1. Veldu kort
Á forsíðunni smellir þú á kortið sem á að frysta. Þá færðu yfirlit yfir kortið þitt ásamt möguleikanum að frysta kortið.
2. Frysta kort
Smellt er á hnappinn „Frysta kort“ og aðgerð staðfest.
3. Virkja kort
Ef enduropna á kort þarf að velja kort og smella á „Virkja kort“.